TODMOBILE í Hörpu og Hofi í október
Todmobile heldur sína árlegu tónleika í Hörpu föstudaginn 9.október en þetta verða fimmtu stórtónleikar Todmobile í Eldborg. Daginn eftir, laugardaginn 10.október, verður hljómsveitin í Hofi á Akureyri.
Nú er komið að “back to basics” rokk og ról tónleikum! Engin kammersveit, enginn kór og enginn erlendur gestur heldur hyggst hljómsveitin skarta sínu fegursta og flytja samnefnda plötu sína, meistaraverkið TODMOBILE, í heild. Þessi plata fagnar einmitt 25 ára afmæli í ár en hún var nýverið valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar í samnefndri bók.
Það skal engan undra enda inniheldur þessi eðalgripur alþekkt lög á borð við Pöddulagið, Eldagið, Spiladósalagið, Brúðkaupslagið, Gúggúlu, Draumalagið, Næturlagið og fleiri ópusa sem Todmobile hefur að mestu haldið tryggð við á tónleikaprógrammi sínu í gegnum árin.
Til viðbótar telja þau Andrea Gylfadóttir, Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Eiður Arnarsson, Kjartan Valdemarsson, Ólafur Hólm og Alma Rut í allar hinar helstu perlurnar frá upphafi ferilsins til dagsins í dag.
Frekari upplýsingar eru á Facebook-síðu Todmobile!