Freddie Mercury 70 í Eldborg og Hofi
Fáir tónleikar hafa notið jafn mikillar velgengni á Íslandi og Heiðurstónleikar Freddie Mercury sem settir voru upp í fyrsta sinn í nóvember árið 2011 í Hörpu. Eftir þó nokkurt hlé kom stórskotalið Rigg Viðburða aftur á svið með þessa frábæru tónlistarveislu með nýju og endurbættu sniði. Tilefnið er ærið þar sem Freddie Mercury hefði orðið sjötugur í byrjun september 2016. Hans bestu tón- og textasmíðar voru fluttar í glæsilegri umgjörð í troðfullum Eldborgarsal Hörpu laugardagskvöldið 3.september og á tvennum stútfullum tónleikum í Hofi á Akureyri laugardagskvöldið 10.september.
Þess má geta að vegna fjölda áskoranna verða aukatónleikar í Eldborg föstudagskvöldið 3.mars 2017!
Forsöngvarar: Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Magni Ásgeirsson, Friðrik Ómar, Matthías Matthíasson, Dagur Sigurðsson & Hulda Björk Garðarsdóttir.
Hljómsveit: Kristján Grétarsson gítar, Einar Þór Jóhannsson gítar, Stefán Örn Gunnlaugsson píanó, Ingvar Alfreðsson hljómborð, Róbert Þórhallsson bassi, Benedikt Brynleifsson trommur & Diddi Guðnason slagverk
Raddsveit Mercury: Alma Rut, Regína Ósk, Ína Valgerður, Íris Hólm, Ingunn Hlín & Davíð Smári.