Dark Side of the Moon – apríl 2018
Dúndurfréttir – Dark Side of the Moon 45 ára
Eldborg – 07.apríl 2018 – kl.19:30 & kl.22:30
Dúndurfréttir fögnuðu því að 45 ár eru liðin frá því að Dark Side of the Moon með hljómsveitinni Pink Floyd kom út. Dark Side of the Moon er ein mest selda plata heims og hefur selst í yfir 50 milljónum eintaka. Hún hefur verið meðal annars meira en 1500 vikur á Billboard topp 200 listanum. Í tilefni af þessi merkisafmæli flutti hljómsveitin Dúndurfréttir plötuna í heild sinni, ásamt öðrum perlum Pink Floyd í Eldborg laugardaginn 7. apríl. Engu var til sparað á tónleikunum enda var Pink Floyd þekkt fyrir glæsilegar sýningar þegar þeir héldu tónleika og voru afmælistónleikarnir í þeim anda.