Dægurlagablanda á Bjarteyjarsandi 24.júlí
Sunnudaginn 24.júlí kl.14:00 voru skemmtilegir sumar-tónleikar á Bjarteyjarsandi í sambandi við tónleikaröðina Tónlistarsumar í Hvalfirði 2016. Þar kom söngkonan Alma Rut fram og söng dægurlög á íslensku undir heitinu “Dægurlagablanda á Bjarteyjarsandi”. Með henni í för var píanóleikarinn Helgi Már Hannesson.
Tónlistarsumar í Hvalfirði 2016 er verkefni sem er styrkt af Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar og Menningaráði Vesturlands með það að markmiði að kynna tónlistarfólk sem er á einn eða annan hátt tengt Hvalfjarðarsveit. Nánar um verkefnið er að finna á www.facebook.com/tonlistarsumarihvalfirdi2016