Viðtal í Fréttatímanum
Flott viðtal við Ölmu Rut í Fréttatímanum þar sem hún ræðir um söngkonustarfið og fyrstu plötu Vestanáttarinnar sem kom út um miðjan júní.
www.frettatiminn.is/vestanatt-yfir-landinu
Vestanátt yfir landinu
MENNING 19. JUN 2015
HANNES FRIÐBJARNARSON
Hljómsveitin Vestanáttin gaf nýverið út sína fyrstu plötu. Hljómsveitin var stofnuð fyrir ári af lagasmiðnum og sálverjanum Guðmundi Jónssyni sem langaði að koma lögum á framfæri sem honum fannst ekki henta hljómsveit sinni, Sálinni hans Jóns míns. Söngkona Vestanáttarinnar, Alma Rut, segir þau syngja mikið saman og mörg lögin séu nokkurskonar dúettar.
„Við byrjuðum að hittast síðasta sumar,“ segir Alma þegar hún er spurð út í tilurð sveitarinnar. „Gummi hafði samband við mig því hann var að setja saman band til þess að flytja lögin sín. Hóaði saman góðum hópi og vildi hafa þetta í svolitlum kántrí stíl. Í byrjun átti ég nú bara að hjálpa honum með raddir og slíkt á einum tónleikum. Svo gengu fyrstu tónleikarnir svo vel að við ákváðum að halda þessu áfram og ákváðum að setja saman þessa plötu,“ segir Alma. „Þetta þróaðist svo aðeins meira út í dúetta og svo syngjum við lögin sitt á hvað. Allt eftir fílingi. Ég hef sungið mikið af röddum og líka sóló og finnst bæði skemmtilegt,“ segir Alma en hún hefur sungið með öllum helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar. Nú síðast var hún áberandi í hópnum sem söng fyrir Íslands hönd í Eurovision í vor.
„Við byrjuðum að taka upp fyrir jólin og kláruðum í apríl,“ segir Alma. „Ég hafði unnið með strákunum flestum áður í allskonar verkefnum og hópurinn small ótrúlega vel saman. Við komum úr ólíkum áttum en sameinumst þarna,“ segir hún. „Við héldum útgáfutónleika í vikunni á Rósenberg sem var ótrúlega gaman. Það er ekki á hverjum degi sem maður er að gefa út plötu, svo það var frábært. Í sumar ætlum við að spila sem mest og kynna plötuna okkar,“ segir Alma Rut, söngkona Vestanáttarinnar.
Platan fæst í öllum betri verslunum en einnig er hægt að panta hana í gegnum facebook síðu sveitarinnar.