Söngvakeppnin
Alma Rut hefur sungið raddir í fjölmörgum lögum í Söngvakeppni Sjónvarpsins síðan 2007. Hún fór t.d. sem rödd fyrir Íslands hönd til Azerbeijan í Eurovision 2012 þegar Greta Salóme og Jónsi sungu lagið Mundu eftir mér, en hægt er að skoða myndir og myndbönd frá Azerbeijan-ævintýrinu hér! Einnig mun hún syngja raddir í laginu Unbroken með Maríu Ólafsdóttur í Eurovision í Vín, Austurríki, 21. og 23.maí 2015!
Söngvakeppnin í ár (2015) fór fram í Háskólabíói 31.janúar og 7.febrúar (undanúrslit) og svo 14.febrúar (úrslit). Nánari upplýsingar eru á: www.ruv.is/songvakeppnin
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2015
Ljósmyndir 2015: Alma Rut, Mummi Lú, Geirix og mbl.is
– Lítil skref – Unbroken –
Undanúrslit, úrslit, bráðabani og sigurvegari 2015 – Lítil Skref er eftir Ásgeir Orra Ásgeirsson, Pálma Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson í StopWaitGo. María Ólafsdóttir syngur og með henni á sviðinu eru Alma Rut, Íris Hólm og Ásgeir Orri í röddum og dansararnir Þórey Birgisdóttir og Ellen Margrét Bæhrenz.
http://www.youtube.com/watch?v=DC5FCyuC7tc
– Í síðasta skipti – Once again –
Undanúrslit, úrslit og bráðabani 2015 – Lagið Í síðasta skipti er eftir Ásgeir Orra Ásgeirsson, Pálma Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson í StopWaitGo. Friðrik Dór syngur og í röddum eru þau Alma Rut, Íris Hólm, Ásgeir Orri og Ásgrímur Geir Logason.
– Aldrei of seint –
Undanúrslit 2015 – Aldrei of seint er eftir Maríu Björk, Regínu Ósk, Marcus Frenell, Sarah Reeve. Regína Ósk syngur og í röddum eru þær Alma Rut, Íris Hólm, Sigríður Beinteinsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir og Íris Lind.
http://www.youtube.com/watch?v=8ueuNnAGcdE
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2014
– Lífið kviknar á ný –
Undanúrslit, úrslit og bráðabani 2014 – Lagið LÍFIÐ KVIKNAR Á NÝ eftir Karl Olgeirsson og Siggu Eyrúnu, en Sigga Eyrún söng lagið. Með henni á sviðinu voru þær Alma Rut, Heiða Ólafs og Elísabet Skagfjörð í röddum og frábærir dansarar, þær Unnur Elísabet og Þórey Birgis. Lagið komst alla leið í úrslitin sem fóru fram í Háskólabíói laugardagskvöldið 15. febrúar 2014. Lagið var kallað upp í bráðabanann og var lagið þá sungið á ensku. Endaði hópurinn í öðru sæti, en Pollapönk fór til Danmerkur í maí fyrir Íslands hönd í Eurovision.
– Aðeins ætluð þér –
Undanúrslit 2014 – Lagið AÐEINS ÆTLUÐ ÞÉR er eftir Maríu Björk og Markus Frenell og var það Guðbjörg Magnúsdóttir sem söng lagið ásamt kennurum úr Söngskóla Maríu Bjarkar, þeim Ágústu Ósk, Evu Björk, Ínu Valgerði og Ölmu Rut.
http://www.youtube.com/watch?v=WyzG2sB69k4
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2013
– Ég syng! –
Undanúrslit, úrslit og bráðabani 2013 – Lagið “Ég syng” eftir Elízu Newman, Gísla Kristjánsson, Ken Rose og Huldu G. Geirsdóttur endaði í 2. sæti í söngvakeppninni 2013. Söngkonan Unnur Eggertsdóttir flutti lagið. Með henni á sviðinu voru þær Alma Rut, Ína Valgerður og Heiða Ólafs í röddum og dansararnir Sandra Björg Helgadóttir og Tara Sif Birgisdóttir.
– Meðal andanna –
Undanúrslit og úrslit 2013 – Flytjandi: Birgitta Haukdal – Höfundar: Birgitta Haukdal, Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir, Jonas Gladnikoff, Michael James Down og Primoz Poglajen
– Ekki líta undan –
Úrslit 2013 – Flytjandi: Magni Ásgeirsson – Höfundar: Sveinn Rúnar Sigurðsson og Ingibjörg Gunnarsdóttir
– Þú –
Undanúrslit 2013 – Flytjandi: Jóhanna Guðrún – Höfundur: Davíð Sigurgeirsson
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2012
– Mundu eftir mér –
Undanúrslit, úrslit, bráðabani og sigurframlag Íslands í EUROVISION í Azerbeijan 2012 – Flytjendur: Greta Salóme og Jónsi – Höfundur: Greta Salóme
– Leyndarmál –
Flytjandi: Íris Hólm – Höfundur: Sveinn Rúnar
Undanúrslit
– Við hjartarót mína –
Flytjandi: Heiða Ólafs
Undanúrslit
– Aldrei sleppir mér –
Flytjandi: Greta Salóme, Guðrún Árný og Heiða Ólafs – Höfundur: Greta Salóme
Undanúrslit og úrslit
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011
Hér eru nokkrar myndir frá úrslitavikunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011, en Alma Rut söng raddir í fimm lögum það árið: Nótt (Jóhanna Guðrún), Elísabet (Pétur Örn Guðmundsson), Ástin mín eina (Erna Hrönn Ólafsdóttir), Ég lofa (Jógvan Hansen) og Þessi þrá (Kristján Gíslason og Lísa Einarsdóttir).
– Nótt –
Flytjandi: Jóhanna Guðrún – Höfundar: María Björk Sverrisdóttir, Marcus Frenelli og Beatrice Eriksson
Undanúrslit og úrslit
– Elísabet –
Flytjandi: Pétur Örn Guðmundsson
Undanúrslit
– Ástin mín eina –
Flytjandi: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Undanúrslit og úrslit
– Ég lofa –
Flytjandi: Jógvan Hansen
Undanúrslit og úrslit
– Þessi þrá –
Flytjendur: Kristján Gíslason og Lísa Einarsdóttir
Undanúrslit
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2010
– You are the one –
Flytjandi: Kolbrún Eva Viktorsdóttir
Undanúrslit
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009
– Roses –
Alma Rut og Erna Hrönn sungu raddir í laginu Roses í Söngvakeppni Sjónvarpsins 2009. Flytjandi lagsins var Halla Vilhjálmsdóttir.
Undanúrslit
– Glópagull –
Flytjandi: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Undanúrslit
Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007
– Ég og heilinn minn –
Flytjandi: Heiða Eiríks
Undanúrslit og úrslit