SPÚTNIK
Skagfirðingakvöld Spot 7.mars 2015
Laugardaginn 7.mars 2015 var hið árlega Skagfirðingakvöld á Spot. Síðastliðin ár hefur húsið verið gjörsamlega troðfullt og stemmningin meiriháttar! Fram komu: Spútnik ásamt Ölmu Rut, Hljómsveitin Von ásamt Ernu Hrönn, Geirmundur Valtýsson, Hljómsveit kvöldsins, Lame Dudes o.fl. Fylgist vel með á www.facebook.com/skagfirdingakvold og ekki missa af næsta Skagfirðingakvöldi!
Spútnik
Alma Rut syngur öðru hvoru með hljómsveitinni SPÚTNIK! Þetta frábæra band spilar mjög fjölbreytta tónlist og allir ættu að geta heyrt eitthvað við sitt hæfi. Endilega fylgist með næst þegar bandið kemur fram, skellið ykkur á gott ball og dansið af ykkur vinnuvikuna!
SPÚTNIK skipa: Kristján Gíslason (söngur) – Ingólfur Sigurðsson (trommur) – Kristinn Einarsson (hljómborð) – Pétur Pétursson (gítar) – Kristinn Kristjánsson (bassi)